Grísk áhrif á olíumarkaði
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað í Asíu í dag en fjárfestar hafa áhyggjur af skuldastöðu Grikkja en ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi um hvernig tekið verði á málum þar.
Í New York hefur verð á West Texas Intermediate-hráolíu til afhendingar í mars lækkað um 54 sent og er 97,30 Bandaríkjadalir tunnan.
Verð á Brent-Norðursjávarolíu hefur lækkað um fjögur sent og er 114,54 dalir tunnan.
Grísk stjórnvöld hafa átt í viðræðum við Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Seðlabanka Evrópu um frekari aðgerðir svo hægt sé að veita gríska ríkinu 130 milljarða evra viðbótarlán. Viðræðurnar hafa staðið yfir frá því í október án árangurs.
Viðræður um niðurfellingu skulda í eigu banka og fjármálafyrirtækja eru á lokastigi en hart er deilt um þann viðbótarniðurskurð sem þríeykið hefur farið fram á. Í honum felst m.a. að lágmarkslaun verði lækkuð um 20% og að 15.000 opinberum starfsmönnum verði sagt upp störfum.



















