Lækkun á mörkuðum
Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag og er það meðal annars rakið til þess að ekki hefur tekist að ná samkomulagi í Grikklandi um skuldavanda landsins.
Í dag vöruðu þau Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, við því að það væri tímabært að Grikkland stæði við skuldbindingar sínar. Landið fengi enga frekari aðstoð nema ljóst væri að alvara væri á bak við hugmyndir grískra stjórnvalda um niðurskurð.
Amadeu Altafaj, talsmaður Olli Rehn sem fer með efnahagsmál hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, minnti á það að sá frestur sem Grikkjum hefði verið veittur væri liðinn.
Í Lundúnum hefur FTSE 100-vísitalan lækkað um 0,25%, í Frankfurt hefur DAX 30-vísistalan lækkað um 0,16% og CAC 40-vísitalan í París hefur lækkað um 0,57%.
Í New York hefur Dow Jones-vísitalan lækkað um 0,39% og Nasdaq um 0,59%.



















