Viðskipti
| AFP
| 6.2.2012
| 8:35
| Uppfært
18:36
Lækkun í Evrópu en hækkun í Asíu
Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa lækkað í morgun en margar af helstu hlutabréfavísitölum í Asíu og Eyjaálfu hækkuðu hins vegar.
Í Evrópu bíða fjárfestar fregna af viðræðum Grikklands við Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Seðlabanka Evrópu en enn er ósamið um auka lán til gríska ríkisins upp á 130 milljarða evra.
Í Asíu hafði hins vegar minnkandi atvinnuleysi í Bandaríkjunum áhrif til hækkunar.
Í Lundúnum hefur FTSE-vísitalan lækkað um 0,33%, CAC í París hefur lækkað um 0,46% og í Frankfurt hefur DAX-vísitalan lækkað um 0,21%.
Í Tókýó hækkaði Nikkei-vísitalan um 1,10%, í Sydney hækkaði vísitalan um 1,05% en í Seúl urðu litlar sem engar breytingar á Kospi-vísitölunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















