Sala á SmartLynx skilar 1,1 milljarði
Sala Icelandair á dótturfélagi í Lettlandi, SmartLynx, skilar 1,1 milljarði króna í bókhaldi félagsins. Salan er bókfærð á fjórða ársfjórðungi 2011.
Síðan fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group hf. lauk hefur staðið til að selja dótturfélag þess, SmartLynx í Lettlandi. Í lok árs 2011 var gengið frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu hlutafé félagsins. Í samningnum voru nokkrir fyrirvarar sem nú hafa verið uppfylltir, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Salan er bókfærð á árinu 2011 og hefur jákvæð áhrif á afkomu Icelandair Group að fjárhæð 1,1 milljarður króna, þar af eru tekjuskattsáhrif jákvæð um 700 milljónir króna. Áhrif á eigið fé eru óveruleg.
Eftir söluna er Icelandair Group enn í ábyrgð fyrir leigugreiðslum á tveimur Airbus 320-vélum en ábyrgðin rennur út í apríl 2012. Jafnframt er Icelandair Group í ábyrgð vegna leigu á tveimur Boeing 767-vélum og renna þeir leigusamningar út í lok árs 2012. Allar þessar flugvélar eru reknar á flugrekstrarskírteini SmartLynx, segir í tilkynningu frá Icelandair.



















