Viðskipti
| mbl
| 6.2.2012
| 14:45
Spá 11 milljarða rekstrarhagnaði
Greiningardeild Arion banka gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður Icelandair nemi 11 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka.
Icelandair Group mun birta afkomu sína fyrir fjórða ársfjórðung í vikunni og gerir greiningardeild ráð fyrir að tekjur Icelandair Group á á fjórða ársfjórðungi verði 20 milljarðar króna og að EBITDA (rekstrarhagnaður) félagsins verði um 400 milljónir króna.
|
|
Markaðspunktar greiningardeildar Arion-banka |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















