Viðskipti
| mbl
| 6.2.2012
| 11:09
| Uppfært
18:22
Telja fyrirtækin skipta sköpum
94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta öllu eða miklu máli þegar kemur að því að skapa góð lífskjör á Íslandi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Viðskiptaráð Íslands.
Á vef Viðskiptaráðs verður fjallað um þetta samhengi atvinnulífs og lífskjara á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands undir yfirskriftinni „Hvers virði er atvinnulíf?“, en þingið fer fram miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















