Eign lífeyrissjóðanna 2.097 milljarðar
Hrein eign lífeyrissjóðanna hækkaði um 18,7 milljarða króna í desember síðastliðnum, en hún nam 2.097 milljörðum króna í lok árs 2011.
Innlendar eignir lífeyrissjóðanna jukust um 3,1 ma. kr. og erlendar eignir um rétt rúma 6 ma.kr. Þetta kemur fram í tölum Seðlabankans sem birtar voru í gær.
Hækkun innlendra eigna í desembermánuði er að mestu leyti tilkomin vegna hækkunar á eign lífeyrissjóðanna í ríkisbréfum, en sú eign hækkar um 3% á milli mánaða. Þá hækkaði eign lífeyrissjóðanna í sjóðum og bankainnistæðum um 4% á milli mánaða. Nemur sú eign 158,2 milljörðum króna í lok desember síðastliðins og hefur þá ekki verið hærri síðan í desember 2010, að því er fram kemur í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
„Hækkun erlendu eignanna, sem jafngildir 1% aukningu, endurspeglar að einhverju leyti hækkun hlutabréfa og veikingu krónunnar á tímabilinu. Órói einkenndi erlenda hlutabréfamarkaði í desember.
Í Evrópu hækkuðu hlutabréf í verði í London þar sem FTSE-vísitalan hækkaði um 1,5% í mánuðinum en í Þýskalandi lækkuðu hlutabréf í verði og í Frakklandi stóðu þau í stað. Í Bandaríkjunum hækkuðu Dow Jones- og S&P 500-hlutabréfavísitölurnar um rúmlega 1% en Nasdaq-vísitalan lækkaði. Veiking krónunnar í desember eykur á hækkun erlendra eigna í krónum talið en krónan veiktist um 0,6% gagnvart helstu gjaldmiðlum í desembermánuði,“ segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
Hrein eign lífeyrissjóðanna um síðustu áramót jafngildir 130% af áætlaðri vergri landsframleiðslu síðasta árs. Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst um 188 ma.kr. á árinu sem samsvarar aukningu um 9,8%. Að teknu tilliti til verðbólgu var raunaukning eigna sjóðanna mun minni, eða 4,3%. Raunávöxtun eigna þeirra hefur þó verið öllu lakari enda nema iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga mun hærri fjárhæð en greiðslur til lífeyrisþega og úttektir séreignasparnaðar.
Mikil breyting á eignasamsetningu lífeyrissjóðanna
Í kjölfar hrunsins og þess taps sem varð á eignum íslenskra lífeyrissjóða hefur eignasamsetning lífeyrissjóðanna breyst mikið frá því sem áður var. Í árslok 2007 var 30% af eignum lífeyrisjóðanna í erlendum eignum, 15% var í innlendum hlutabréfum og sjóðfélagalán námu 7,6%. 47% af eignum lífeyrissjóðanna var þá í innlendum skuldabréfum og verðbréfasjóðum. Í árslok 2011 var hinsvegar 22% af eignum sjóðanna í erlendum eignum, 5,2% er í innlendum hlutabréfum og 8,4% í sjóðfélagalánum. Núna er stærsti hluti eigna lífeyrissjóðanna í innlendum skuldabréfum og verðbréfasjóðum, eða 59% eigna sjóðanna.
„Þessar breytingar eru til vitnis um umhverfið sem sjóðirnir starfa nú í, umhverfi sem litað er af áhættufælni og fæð fjárfestingarkosta. Í takti við þessar breytingar á starfsumhverfi hefur hlutfall ríkistryggðra eigna sjóðanna hækkað gríðarlega. Þetta hlutfall var 25% í september 2008 en er rétt tæplega 50% í lok síðasta árs,“ segir í Morgunkorni.




















