Viðskipti
| AFP
| 7.2.2012
| 14:11
| Uppfært
14:33
Eignir færðar niður
Franska fjölmiðlafyrirtækið Lagardere ætlar að minnka virði eigna um 900 milljónir evra, 146 milljarða króna, vegna slæmrar afkomu af íþrótta- og áskriftarsjónvarpi.
Lagardere, sem meðal annars gefur út bækurnar um Ástrík og fjölmörg tímarit, svo sem Elle og Paris Match, hefur þurft að minnka virði íþróttastöðvar í eigu keðjunnar. Eins hefur virði 20% eignar í Canal+ France verið fært niður sem og Europe 1.
Verð hlutabréfa Lagardere hefur lækkað um 5,57% það sem af er degi í kauphöllinni í París en félagið birti afkomuviðvörun fyrr í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















