Hægur bati að mati ASÍ
Í nýrri hagspá hagdeildar ASÍ sem birt var í dag kemur fram að hagkerfið á Íslandi er að taka við sér. Hagvöxtur er að aukast, atvinnuleysið fer hægt minnkandi en verðbólgan helst þó enn fremur há á þessu ári en fer eftir það lækkandi. Þá er gert ráð fyrir lítilsháttar styrkingu krónunnar á næstu árum.
Áætlanir gera ráð fyrir að hagvöxtur árið 2011 hafi verið 3,1%. Þetta er nokkru meiri vöxtur en búist var við og ASÍ segir að þetta megi rekja hann til aukningar í einkaneyslu og útflutningi. Áfram er gert ráð fyrir hægfara bata með vexti landsframleiðslu á bilinu 1,4% til 2% á ári næstu þrjú ár. Þetta er minni hagvöxtur en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur nefnt í ræðu og riti að undanförnu.
Atvinnuleysi í fyrra var 7,4%, en ASÍ spáir 6,6% atvinnuleysi á þessu ári. „Staðan á vinnumarkaði verður áfram erfið en batnar hægt í takt við jákvæðari horfur í efnahagsmálum. Í lok spátímans 2014 er gert ráð fyrir að atvinnuleysið verði 4,9%.“
Ráðstöfunartekjur hækka vegna launahækkana og tímabundinna aðgerða til stuðnings skuldugum heimilum og mun staða heimilanna því vænkast á næstu misserum, að mati ASÍ. „Þegar líður á spátímann og tímabundnum aðgerðum sleppir mun mikil skuldsetning heimilanna og erfitt aðgengi þeirra að lánsfé hefta vöxt ráðstöfunartekna og takmarka getu þeirra til aukinnar neyslu.“
Verðbólga verður mikil í ár eða 5,1% en hún minnkar smá saman þegar líður á spátímann og verður 2% í árslok 2014.
Spáin byggir á sömu forsendum og spá hagdeildar frá því í október 2011. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við endurbætur á álverinu í Straumsvík og framkvæmdir við tengd orkuver ljúki í árslok 2014. Vegna óvissu um framhald framkvæmda við álverið í Helguvík er ekki gert ráð fyrir þeim í þessari spá né framkvæmdum við tengd orkuver.
Gert er ráð fyrir framkvæmdum við kísilver í Helguvík seinki lítillega og framkvæmdir fari á fullt skrið á fyrri hluta þessa árs. Einnig er gert ráð fyrir ýmsum opinberum og hálfopinberum framkvæmdum sem fjármagnaðar verði af einkaaðilum, þó óvissa ríki enn um nokkur þeirra.



















