Viðskipti
| AFP
| 7.2.2012
| 8:42
| Uppfært
10:37
Hagnaður Toyota dregst saman
Hagnaður japanska bílaframleiðandans Toyota dróst töluvert saman á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins en útlitið fyrir árið í heild er betra en talið var.
Hagnaður Toyota dróst saman um 57,5% á tímabilinu mars-desember og nam 162 milljörðum jena, 263 milljörðum króna. Helstu ástæður fyrir samdrættinum eru jarðskjálftinn og flóðbylgjan hinn 11. mars í fyrra, flóðin í Taílandi og sterk staða jensins gagnvart helstu gjaldmiðlum.
Rekstrarhagnaður Toyota dróst saman um 72,3% og var 117 milljarðar jena á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins.
Toyota hefur gefið út nýja afkomuspá en nú er gert ráð fyrir að hagnaðurinn nemi 200 milljörðum jena sem er 11,1% aukning frá fyrri spá félagsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















