Hallinn minni en gert var ráð fyrir
Fram kemur í viðtali franska dagblaðsins Le Figaro við Pierre Lellouche, aðstoðarviðskiptaráðherra Frakklands, að þótt viðskiptahalli landsins hafi aldrei mælst meiri en á síðasta ári sé hann engu að síður minni en gert hafi verið ráð fyrir. Að hans sögn var búist við því að hallinn yrði 75 milljarðar evra en hann var hins vegar 69,6 milljarðar evra eins og fjallað hefur verið um hér á mbl.is.
Fram kom í máli Lellouche að innflutningur Frakka hefði aukist um 11% á árinu 2011 og verið 498 milljarðar evra. Útflutningur hefði hins vegar aukist talsvert minna eða um 8,6% og verið 429 milljarðar evra. Útflutningsaukningin hefði leitt til þess að um 90 þúsund ný störf urðu til.
Lellouche sagði ennfremur að það væri misjafnt eftir greinum hversu vel eða illa hefði gengið og gleðjast mætti yfir því þar sem vel hefði gengið. Hins vegar væri ljóst að Frakkar yrðu að styrkja útflutning sinn gagnvart ýmsum lykilmarkaðssvæðum og þá einkum í ýmsum nýmarkaðslöndum líkt og BRIC-ríkjunum svonefndu, en í þeim hópi eru Brasilía, Rússland, Indland og Kína.
Þá kom einnig fram í viðtalinu að hlutur Frakklands í heimsvipskiptum hefði dregist verulega saman undanfarna tvo áratugi. Árið 1990 hefði hann verið 6,2% en væri í dag 3,6%.



















