Viðskipti
| Morgunblaðið
| 7.2.2012
| 7:45
| Uppfært
8:13
Lettneska flugfélagið selt stjórnendahópi
Icelandair Group hf. hefur selt dótturfélagið SmartLynx í Lettlandi. Síðan fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group hf. lauk árið 2010 hefur staðið til að selja dótturfélag þess, SmartLynx í Lettlandi.
Fyrst var gengið í það að selja Blue bird og Travel Service í Tékklandi og í lok árs 2011 var síðan gengið frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu hlutafé félagsins.
Aðspurður hvert söluverðið hafi verið segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group hf., að þeir gefi það ekki upp. „Stjórnendahópurinn sem keypti þetta er sambland af Íslendingum og heimamönnum og óskum við þeim góðs gengis. Við einblínum á Ísland.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















