Viðskipti
| AFP
| 7.2.2012
| 8:13
| Uppfært
10:33
Mikil umskipti hjá BP
Mikil umskipti urðu hjá breska olíufélaginu BP á síðasta ári en hagnaður ársins nam 23,9 milljörðum Bandaríkjadala, 2.966 milljörðum króna, samanborið við 4,9 milljarða dala tap árið 2010.
Árið 2010 skýrist mikið tap BP af olíuslysinu í Mexíkóflóa en í fyrra hafði hátt olíuverð jákvæð áhrif á afkomu félagsins.
Bob Dudley, forstjóri BP, segir í tilkynningu að félagið sé á réttri leið og árið í ár muni einkennast af miklum fjárfestingum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















