Viðskipti
| AFP
| 7.2.2012
| 15:20
Olíuverð hækkar í Evrópu
Verð á Brent-Norðursjávarolíu hefur ekki verið hærra á olíumarkaði í Lundúnum í sex mánuði en nú síðdegis fór verð á tunnunni yfir 117 Bandaríkjadali um tíma.
Um tíma fór tunnan í 117,10 dali en er nú 116,19 dalir sem er 26 sentum hærra verð en fékkst fyrir tunnuna í gærkvöldi.
Í New York hefur verð á West Texas Intermediate-hráolíu til afhendingar í mars lækkað um 25 sent og er 96,66 dalir tunnan.
Er hækkunin í Lundúnum rakin til ótta fjárfesta vegna ástandsins í Nígeríu þar sem uppreisnarmenn hafa hótað frekari árásum á olíuvinnslur. Eins hefur kuldinn í Evrópu haft sitt að segja og notkun aukist verulega samfara kuldanum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















