Önnur dómssátt hjá Actavis
Lyfjafyrirtækið Actavis í Bandaríkjunum, Actavis Group HF, hefur ásamt fjórum öðrum samið um að greiða 25,2 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega þriggja milljarða króna, til Louisianaríkis vegna ofgreiddra lyfja.
Stutt er síðan greint var frá því að bandarísk dótturfyrirtæki Actavis hefðu fallist á að greiða 118,6 milljónir Bandaríkjadala, 14,6 milljarða íslenskra króna, í kjölfar ásakana um að þau hefðu látið alríkisstjórn Bandaríkjanna og fjögur ríki innan Bandaríkjanna borga of mikið fyrir lyf.
Að þessu sinni segir Bloomberg fréttastofan frá því, að Louisiana hafi farið í mál við yfir hundrað lyfjafyrirtæki, sakað þau um svik og að brjóta gegn lögum í ríkinu. Er talið að þau hafi látið ríkið greiða of mikið fyrir lyf handa fátækari sjúklingum.
Ekki hefur verið gefið upp hversu mikið fyrirtækin fjögur þurfa að greiða af heildarfjárhæðinni.



















