Viðskipti
| mbl
| 8.2.2012
| 9:20
Afkoma Statoil umfram væntingar
Afkoma norska olíurisans Statoil fyrir árið 2011 var mun betri en vænst var, þökk sé meðal annars hærra verði og fjármagnstekjum.
Helge Lund, forstjóri Statoil, sagði á blaðamannafundi í gær að afkoma fyrirtækisins hefði aldrei verið betri. Hagnaður þess næmi að meðaltali hálfum milljarði NOK á dag.
Á fjórða ársfjórðungi nam afkoma Statoil fyrir skatt 654 milljónum NOK hvern einasta dag. Allt í allt, eftir 92 daga, nemur það 60,2 milljörðum NOK arð fyrir skatt.
Að sögn Dn.no má meðal annars rekja aukninguna til hærri olíu- og gasverðs auk ágóðu af sölu fyrirtækisins Gassled, fyrir 8,5 milljarða NOK.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















