Áfram dregur úr atvinnuleysi
Áætlað er að atvinnuleysi verði um 6,3% í ár og að það verði komið niður í 4½% í lok árs 2014, samkvæmt spá Seðlabanka Íslands.
Gert er ráð fyrir svipuðum og tiltölulega hægum vexti atvinnu til loka ársins 2014 eða tæplega 1% að meðaltali á ári, samkvæmt upplýsingum í Peningamálum Seðlabanka Íslands.
Öryrkjum og námsmönnum hefur fjölgað
Segir í Peningamálum að helsta skýringin á því að fólki hafi fækkað á vinnumarkaði á Íslandi sé fjölgun námsmanna og öryrkja.
Vinnuaflsframboð minnkaði um rúmlega 3.000 manns milli ára á fjórða fjórðungi síðasta árs þannig að atvinnuþátttökuhlutfallið lækkaði um 1,5 prósentur og hefur ekki verið lægra frá því að framkvæmd ársfjórðungslegra vinnumarkaðskannana hófst árið 2003.
Þátttökuhlutfallið mældist 80,4% á árinu 2011 og lækkaði um 0,7 prósentur frá fyrra ári eða sem samsvarar tæplega 1.000 manns. Á sama tíma fjölgaði þeim sem voru utan vinnumarkaðar um tæplega 3.000.
Atvinnuleysi hefur verið svipað og gert var ráð fyrir í síðustu spá Seðlabankans, bæði á síðasta fjórðungnum í fyrra (7,1%) og á árinu öllu (7,4%) og dróst atvinnuleysi saman um 0,7 prósentur milli ára.
Vísbendingar úr viðhorfskönnun meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins, sem Capacent Gallup gerði í desember, gefa til kynna að 7,5 prósentum fleiri fyrirtæki vilji fækka starfsmönnum á næstu sex mánuðum en fjölga, en það er um helmingi lægra hlutfall en í sambærilegri könnun sem gerð var í október. Horfur um atvinnuleysi eru svipaðar og þær voru í nóvemberspá Seðlabankans.




















