Einkaneyslan helsti drifkrafturinn
Seðlabankinn gerir ráð fyrir að einkaneysla verði áfram einn helsti helstu drifkraftur efnahagsbatans líkt og á undanförnum misserum. Til loka árs 2014 spáir Seðlabankinn því að einkaneysla muni vaxa um 2½% að meðaltali á ári. Hlutfall einkaneyslu af landsframleiðslu verður þó áfram lágt í sögulegu samhengi.
Í Peningamálum Seðlabanka Íslands kemur fram að gert sé ráð fyrir því að einkaneysla vaxi hægar í ár en var á síðasta ári, þar sem áhrif tímabundinna aðgerða er ýta undir neyslu dvíni.
Aukinn auður heimila drífur einkaneysluna áfram
„Þess í stað verður einkaneysla næstu missera í auknum mæli drifin áfram af hærra atvinnustigi, vaxandi kaupmætti og auknum auð heimila, sem endurspegla lækkun skulda, hækkun eignaverðs og lækkun raunvaxta,“ segir í Peningamálum.
Spáð er að árstíðarleiðrétt einkaneysla hafi aukist um tæplega 2% á fjórða ársfjórðungi í fyrra frá fyrri fjórðungi og um 5% milli ára. Að baki þessari áætlun liggur þróun ýmissa vísbendinga á borð við greiðslukortaveltu, innflutning neysluvarnings og þróun smásölu.
Nú er áætlað að einkaneysla hafi aukist um 4,5% á síðasta ári, sem er nokkru meira en spáð var í nóvember í Peningamálum Seðlabanka Íslands.




















