Viðskipti
| AFP
| 8.2.2012
| 7:16
Hækkun á mörkuðum
Hlutabréfavísitölur í Asíu og Eyjaálfu hækkuðu í dag í kjölfar hækkana í Bandaríkjunum í gærkvöldi og væntinga um að Grikkir nái samkomulagi við lánadrottna sína og forði sér þannig frá greiðslufalli.
Evran hefur einnig hækkað í dag eftir að fregnir bárust um að samkomulag við Grikki væri nánast í höfn.
Í Sydney hækkaði hlutabréfavísitalan um 0,40%, KOSPI vísitalan hækkaði um 1,12% í Seúl og hefur ekki verið hærri í hálft ár og í Tókýó hækkaði Nikkei vísitalan um 1,10%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















