Viðskipti
| AFP
| 8.2.2012
| 8:23
Hækkun í Evrópu
Helstu hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa hækkað í morgun eftir að viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til væntinga um að samkomulag náist milli grískra stjórnvalda og lánadrottna um niðurfærslu skulda Grikklands.
Í Lundúnum hefur FTSE vísitalan hækkað um 0,38%, DAX hefur hækkað um 0,69% í Frankfurt og CAC hefur hækkað um 0,41% í París.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















