Viðskipti
| AFP
| 8.2.2012
| 8:32
Hagnaður Nissan jókst um 3,2%
Hagnaður japanska bílaframleiðandans Nissan jókst um 3,2% á þriðja ársfjórðungi rekstrarársins, október-desember, og er aukningin rakin til góðrar sölu sem hafði meiri áhrif heldur en styrking jensins á afkomu félagsins.
Nam hagnaðurinn 82,67 milljörðum jena, 133 milljörðum króna. Salan jókst um 11% en ársfjórðungurinn var að mörgu leyti erfiður vegna flóða í Taílandi, sem dró úr framleiðslu Nissan þar í landi og styrking jensins hafði áhrif á útflutningstekjur Nissan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















