Viðskipti
| AFP
| 8.2.2012
| 15:53
Hlutabréfavísitölur á uppleið
Helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála hafa hækkað í dag vegna væntinga um að samkomulag sé að nást í Grikklandi um skuldir ríkissjóðs.
Dow Jones hefur hækkað um 0,08%, Nasdaq um 0,33% og S&P 500 um 0,22%.
Í Evrópu hefur FTSE-vísitalan í Lundúnum breyst nánast ekki neitt, DAX hefur hækkað um 0,45% í Frankfurt og í París hefur CAC-vísitalan hækkað um 0,48%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















