Mikil viðbrögð á markaði
Mikil viðbrögð hafi verið á skuldabréfamarkaði í morgun í kjölfar tilkynningar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um óbreytta vexti, samkvæmt upplýsingum frá greiningu Íslandsbanka.
„Er því ljóst að þessi ákvörðun nefndarinnar hefur komið mörgum á markaði í opna skjöldu, enda voru flestir greiningaraðilar búnir að spá 25 punkta hækkun þótt við hefðum raunar reiknað með óbreyttum vöxtum.
Myndaðist því töluverður kaupþrýstingur strax við opnun markaða og hefur mikil velta verið á skuldabréfamarkaði það sem af er degi,“ segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
Veltan á markaði hefur verið um 16 milljarðar króna í morgun, þ.a. velta óverðtryggða ríkisbréfa rúmir 11 milljarðar króna.
„Hefur krafan á markaði þar með lækkað verulega, þá sér í lagi á lengri enda óverðtryggða hluta markaðarins. Nemur kröfulækkun lengri óverðtryggðra hlutans nú 23-30 punktum, þ.e. þeirra bréfa sem eru með gjalddaga síðar en 2019, en styttri óverðtryggðu flokkana um 10-20 punktum. Kröfulækkun á verðtryggða hluta markaðarins er einnig töluverð, eða um 12-20 punktar,“ segir í Morgunkorni.




















