Nýr tónn hjá nefndinni
Greining Íslandsbanka segir að nú kveði við nýjan tón hjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands en nefndin telur að ef verðbólguhorfur batni ekki þurfi að hækka nafnvexti.
Við síðustu tvær vaxtaákvarðanir hefur peningastefnunefndin sagt að núverandi vaxtastig sé hæfilegt en horft lengra fram á veginn sé nauðsynlegt að draga úr slaka peningastefnunnar samhliða því sem efnahagsbatanum í hagkerfinu vindur fram.
Mat Seðlabankans þá var að minnkandi verðbólga myndi að miklu leyti sjá um að auka aðhald peningastefnunnar, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
„Núna kveður hins vegar við nýjan tón í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar og segir nefndin nú að batni verðbólguhorfur ekki sé líklegt að hækka þurfi nafnvexti á næstunni til þess að taumhald peningastefnunnar sé hæfilegt.
Í yfirlýsingunni segir jafnframt að búist sé við að verðbólga hjaðni hægar á árinu en áður var gert ráð fyrir og haldist gengi krónunnar svipað og það er nú verði verðbólga fyrir ofan verðbólgumarkmið bankans lengur en áður var spáð,“ segir í Morgunkorni.
Greining Íslandsbanka segir þetta í takt við væntingar deildarinnar en hún reiknar með að peningastefnunefnd bankans ákveði að hækka stýrivexti sína á öðrum fjórðungi þessa árs um 0,25 prósentur og nefndin muni samhliða því jafnframt gefa til kynna að fleiri vaxtahækkanir séu í pípunum.
„Við teljum að verðbólguþróunin næsta kastið verði óhagstæðari en Seðlabankinn gerir ráð fyrir, m.a. vegna gengisþróunar krónunnar og hugsanlega vegna meiri launaþrýstings en felst í spá bankans. Mun þetta knýja fram vaxtahækkunina að okkar mati.
Spá vaxtahækkun á næstunni
Spáum við því að önnur vaxtahækkun komi síðar á árinu og að stýrivextir bankans verði 0,5 prósentustigum hærri í lok árs en þeir eru nú. Óvissan í spánni er talsverð, en hagvöxtur gæti orðið minni en bankinn spáir og myndi slík þróun halda aftur af vaxtahækkun,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka.




















