Viðskipti
| mbl
| 8.2.2012
| 9:18
Seldu bíla fyrir 16,9 milljarða í fyrra
Bílar voru fluttir inn til landsins í fyrra fyrir 16,9 milljarða. Þetta er veruleg aukning frá árinu 2010 þegar bílasalan nam 10,7 milljörðum. Nýskráðir bílar í fyrra voru 5.933 en voru 3.677 árið 2010.
Sala á bílum var mjög mikil fyrir hrun. Árið 2007 voru fluttir inn bílar fyrir 43 milljarða. Bílasala á árunum 2009 og 2010 var í kringum 10 milljarða hvort ár. Að stórum hluta var þar um að ræða sölu til bílaleigufyrirtækja.
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands jókst bílasala þegar leið á síðasta ár og var tæplega tveir milljarðar í desember.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















