Viðskipti
| AFP
| 8.2.2012
| 16:04
Time Warner gleður fjárfesta
Hagnaður bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins Time Warner jókst um 0,5% á fjórða ársfjórðungi og nam 233 milljónum Bandaríkjadala, 28,5 milljörðum króna, og er þetta mun betri afkoma heldur en væntingar voru um. Hafa hlutabréf Time Warner hækkað um 4% í kauphöllinni í New York í dag.
Tekjur Time Warner jukust um 8% á árinu 2011 og voru 29 milljarðar dala en hagnaður fyrir árið í heild var 922 milljónir dala
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















