Viðskipti
| mbl
| 8.2.2012
| 10:07
Útlit fyrir 7% lækkun álverðs
Útlit er fyrir að verðlag helstu útflutningsafurða Íslands verði nokkru lakara á þessu ári en gert var ráð fyrir í nóvemberspá Seðlabanka Íslands sem birt var í Peningamálum í nóvember.
Áætlað er að álverð verði um 7% lægra að meðaltali á þessu ári en í fyrra en í nóvemberspánni var gert ráð fyrir að álverð yrði tæplega 2% hærra á þessu ári.
Reiknað er með að verð á sjávarafurðum í erlendum gjaldmiðlum haldi áfram að hækka á árinu en að hækkunin nemi 4% í stað rúmlega 6% í síðustu spá Peningamála.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















