Viðskipti
| mbl
| 8.2.2012
| 15:39
Veltuaukningin 6,8%
Veltuaukning á Visa kreditkortaviðskiptum var 6,8% í janúar borið saman við sama mánuð í fyrra. Notkunin innanlands jókst um 5,6% en í útlöndum var veltuaukningin tæp 17,4%.
Heildarveltuaukning varð um 10,5% á árinu 2011 miðað við árið 2010, veltuaukning innanlands var 8,6% og utanlands 21,9%.
Í janúar var aukningin hlutfallslega mest á bensínstöðvum og eldsneytissjálfssölum eða 9,9%. Í matvöruverslunum og stórverslunum er aukningin 6,4% í janúar milli ára en í áfengisverslunum er samdrátturinn 2,3%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















