Vextir miklu hærri hér
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að því beri að fagna að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum en á sama tíma skjóti það skökku við að stýrivextir á Íslandi séu 4,5% hærri heldur en í helstu viðskiptalöndum.
Batni verðbólguhorfur ekki er líklegt að hækka þurfi nafnvexti á næstunni til þess að taumhald peningastefnunnar, sem er enn tiltölulega laust, verði hæfilegt, segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Gylfi segir að það sé með ólíkindum að talað sé um slaka peningastefnu hér á sama tíma og vaxtamunurinn sé jafn mikill og raun ber vitni.
Sama stefnan og leiddu okkur inn í hrunið
„Þetta er sama stefnan sem leiddi okkur inn í hrunið á sínum tíma og hvað ætlum við Íslendingar oft að endurtaka leikinn og lemja hausinn í steininn. Að halda það að vaxtabreytingar og ofurvextir leiði til stöðugleika. Við erum varla komin út úr síðasta hruni,“ segir Gylfi.
Hann segist ekki trúa því að Seðlabankinn telji að Ísland sé undir svo miklum þensluáhrifum þar sem atvinnuleysi er nálægt sögulegu hámarki og samt ekkert að gerast,“ segir Gylfi.




















