59% samdráttur hjá Rio Tinto
Hagnaður ál- og námafyrirtækisins Rio Tinto, sem á og rekur álverið í Straumsvík, dróst saman um 59% á síðasta ári og nam 5,8 milljörðum Bandaríkjadala, 710 milljörðum króna.
Forstjóri Rio Tinto, Tom Albanese, hefur ákveðið að þiggja ekki bónusgreiðslur fyrir síðasta ár vegna afskrifta vegna álframleiðslu félagsins á síðasta ári. Hefur Rio Tinto þurft að afskrifa 8,9 milljarða dala vegna yfirtökunnar á Alcan og er það helsta ástæða þess að hagnaður félagsins dróst saman á milli ára.
Rekstrarhagnaður Rio Tinto nam 15,5 milljörðum dala á síðasta ári sem er 11% aukning á milli ára.
Albanese segir að þar sem yfirtakan á Alcan hafi farið fram á meðan hann stýrði fyrirtækinu telji hann ekki rétt að þiggja bónus í ár.
Stjórnarformaður Rio Tinto, Jan du Plessis, segir það rétta ákvörðun hjá Albanese og fjármálastjóra Rio Tinto, Guy Elliott, að þiggja ekki bónusgreiðslur frá félaginu í ár. Því á sama tíma og félagið skili afar góðum rekstrarhagnaði megi ekki horfa fram hjá þeim afskriftum sem félagið taki á sig vegna álframleiðslunnar.



















