Fréttaskýring: Allir munu græða á auknu flugframboði Easy Jet

Þotur EasyJet hefja komur sínar til Íslands í lok mars. . stækka

Þotur EasyJet hefja komur sínar til Íslands í lok mars. . mbl.is/Skapti

Morgunblaðið Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is

Í gær tilkynnti Easy Jet að það myndi á næsta ári byrja að fljúga frá Íslandi til London allan ársins hring. Fram að þessu hafði verið áætlað að fljúga aðeins yfir sumartímann. Um þrjár ferðir á viku er að ræða og mun lægsta miðaverð fram og til baka með flugvallarsköttum vera 90 pund eða um 17.500 íslenskar krónur, að sögn Hughs Aitkens, framkvæmdastjóra viðskipta EasyJet á Bretlandi, sem er í heimsókn á Íslandi sem stendur.

Lággjaldaflugfélagið Easy Jet er stærsta flugfélag í Bretlandi - stærra en bæði British Airwaves og Virgin Airlines til samans - og jafnframt 10. stærsta flugfélag í heimi.

„Við leggjum mikið upp úr því að nýta flugflota okkar og reynum að vera komnir aftur í loftið 45 mínútum eftir lendingu,“ segir Aitkin. „Þannig er flugáhöfnin alltaf komin heim í tíma og því þarf ekki að borga fyrir gistingu hennar erlendis. Með lágum kostnaði höldum við verðinu niðri en það er mikilvægt að bóka snemma til að ná lægsta verði á miðann. Við hófum sölu á miðum í nóvember og erum þegar búnir að selja 8.000 miða til Íslands en það er um 30% allra ferða sem við bjóðum upp á í sumar. Salan gengur það vel að ákveðið var að bjóða upp á ferðir allan ársins hring frá og með apríl. Það kom okkur á óvart hvað vel gekk að selja Íslendingum miða, því helmingur af miðunum sem búið er að selja fór til þeirra.“

Hugh Aitken, framkvæmdastjóri viðskipta EasyJet í Bretlandi, er hér á landi til að kynna flugáætlun ...

Hugh Aitken, framkvæmdastjóri viðskipta EasyJet í Bretlandi, er hér á landi til að kynna flugáætlun fyrirtækisins. mbl.is/Ómar

Aðspurður um samkeppnina á Íslandi segist hann halda að markaðurinn muni stækka við komu þeirra. „Við höfum reynslu af því að markaðir stækka yfirleitt við það að við komum inn á þá, því fleira fólk hefur tækifæri á að fljúga ef farmiðarnir eru ódýrir. Til dæmis þegar við hófum flug frá Glasgow til Berlínar fjölgaði þeim sem ferðuðust þá leið á skömmum tíma um tífalt - úr sex þúsund í sextíu þúsund manns.

Við höfum verið að skoða þetta í tvö ár og erum nokkuð vissir um að við höfum valið rétt. Ísland er spennandi kostur í dag og við munum gera okkar til að landið verði enn meira spennandi. Forstjóri fyrirtækisins kemur hingað í vor og með honum verða átta toppblaðamenn í ferðamennsku.“

Kemur ekki á óvart

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir að þessi ákvörðun Easy Jet komi ekki á óvart og segir aðspurður að það verði engin stefnubreyting hjá þeirra flugfélagi við þessar fréttir. „Það hefur gengið mjög vel í ferðamannaþjónustunni og farþegum fjölgað. Við erum með tvær ferðir á dag, fjórtán sinnum í viku, og finnum vel fyrir aukningunni. Við teljum Easy Jet vera að stefna á annan markað, það verði annar hópur fólks sem ferðast með þeim.

Það er líka svo mikið af fólki sem býr í London að ég held að markaðurinn geti borið fleiri ferðir þaðan, sérstaklega þar sem það er frá öðrum flugvelli. Við fljúgum frá Heathrow og þeir frá Luton. Þetta er líka meira lággjaldafyrirtæki, við erum ekki í þeim bransa.

En þetta mun gagnast ferðamannaþjónustunni og vonandi minnka sveiflurnar í árstíðum hvað hana varðar.

Þetta hugsanlega stækkar bara kökuna, það er það sem gerðist þegar British Airwaves og flugfélagið Go fóru að fljúga hingað, þá stækkaði bara kakan og farþegum fjölgaði til Íslands.“

Vanir samkeppni

Spurður hvort það muni valda einhverri stefnubreytingu hjá Iceland Express að Easy Jet sé farið að fljúga hingað til lands er svar Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, einfalt: Nei.

„Við höfum verið í samkeppni við 14-18 flugfélög sem hafa flogið hingað á sumrin og óttumst ekki samkeppni við Easy Jet frekar en aðra,“ segir Heimir Már. „Við teljum okkur vera að fljúga frá betri flugvelli en til dæmis Easy Jet sem er á Luton-flugvelli, auk þess sem þeir lenda á slæmum tíma og samgöngur þaðan eru ekki eins góðar. Það er ágætt ef menn telja að markaðurinn sé nógu stór til þess að fara í samkeppni við okkur, farþegar munu njóta þess.

Markaðshlutdeild okkar fór úr 35% af öllum farþegum frá London til Íslands í 49% í ágúst og höfum við verið að nálgast það að vera með helming allra farþega sem fljúga þessa leið. Við teljum að það sé vegna þess að við erum með góða þjónustu og hagstætt verð.“

Ódýrt hjá Easy Jet

Lágfargjaldaflugfélagið Easy Jet var stofnað árið 1996 og er með höfuðstöðvar sínar í London á Luton-flugvelli. Það var Kýpur-Grikkinn Stelios Haji-Ioannou, sem kominn er af ríkri fjölskyldu úr skipabransanum, sem stofnaði fyrirtækið og einbeitti sér fyrst að tveimur áfangastöðum, frá London til Glasgow og einnig til Edinburg.

Rekstrarstefna flugfélagsins, rétt einsog hjá Ryanair, er fengin frá bandaríska flugfélaginu Southwest Airlines. Hugmyndin er að skera sem mest niður í kostnaði, eins og að láta farþega sjálfa útvega sér tengiflug, hafa ekki frían mat um borð og hafa góða nýtingu á flugvélunum.

Öfugt við Southwest er Easy Jet með mjög ungan flugflota, meðalaldur vélanna er 3½ ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir