Viðskipti
| mbl
| 9.2.2012
| 10:24
Danske Bank boðar uppsagnir
Danski bankinn Danske Bank ætlar að fækka störfum um tvö þúsund á næstu þremur árum en alls starfa 21.320 manns hjá bankanum. Þetta kemur fram í frétt á vef Børsen í dag.
Danske Bank kynnti afkomu sína í dag og nam hagnaður bankans 1,7 milljörðum danskra króna, 37 milljörðum króna. Hagnaður bankans fyrir skatta var 4,2 milljarðar danskra króna, 92 milljarðar íslenskra króna.
Er þetta síðasta uppgjör bankans sem bankastjóri Danske Bank, Peter Straarup, kynnir en hann lætur brátt af störfum hjá bankanum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















