Hagnaður Össurar 4,5 milljarðar
Hagnaður Össurar nam 36,63 milljónum Bandaríkjadala, 4,5 milljörðum króna, á síðasta ári samanborið við 35,4 milljónir dala árið 2010.
Í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka kemur fram að uppgjör Össurar á fjórða ársfjórðungi hafi verið undir væntingum deildarinnar.
Tekjur fjórðungsins voru 97,9 milljónir Bandaríkjadala og nam tekjuvöxtur frá sama fjórðungi fyrra árs því 3,6% en greining Íslandsbanka hafði gert ráð fyrir að tekjuvöxtur yrði 5,6%.
Rekstrarhagnaður Össurar á fjórða ársfjórðungi nam 16,4 milljónum Bandaríkjadala eða 16,7% af tekjum sem er lægsta framlegðarhlutfall ársins og töluvert undir markmiðum fyrirtækisins um 20-21% EBITDA-framlegð, segir í Morgunkorni.
Hagnaður tímabilsins nemur 7,6 milljónum dala samanborið við rúmlega 8 milljónir dala hagnað á sama fjórðung fyrra árs.
„Ástæðan fyrir minni tekjuvexti nú er að salan á Ameríkumarkaði gekk ekki eins vel á síðasta ársfjórðungi 2011 og framan af árinu. Þá var sala á stoðtækjum einnig hægari en gert var ráð fyrir. Sölutekjur síðasta árs nema í heildina litið 401 m. dala, EBITDA er 76 m. dala og hagnaður síðasta árs 37 m. dala. Útgefið vaxtarmarkmið Össurar fyrir síðasta ár var 4-6% innri vöxtur í heimamynt en niðurstaðan var 5%. Össur heldur óbreyttu markmiði fyrir 2012, þ.e. 4-6% innri vexti í heimamynt og 20-21% EBITDA-framlegð af kjarnastarfsemi,“ segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
Össur hefur flutt framleiðslu stuðningstækja sem áður var í Bandaríkjunum í nýja verksmiðju í Mexíkó. Áætlanir Össurar gera ráð fyrir að sparnaður vegna þessa verði um það bil fjórar milljónir dala í ár sem hækkar framlegð um 1%.
„Þannig nemur t.d. launakostnaður á starfsmann í Mexíkó aðeins um 25% af því sem hann er í Bandaríkjunum eða Evrópu. Í lok síðasta árs kláraðist flutningur á allri framleiðslu stuðningstækja frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Össur hefur lýst yfir áhuga á ytri vexti í stuðningstækjageiranum en það hefur gengið erfiðlega hjá Össuri að finna ákjósanlegt fyrirtæki.
Ef stór fyrirtækjakaup eru ekki í spilunum er líklegt að félagið fari að hefja arðgreiðslur en Össur hefur aldrei greitt út arð síðan félagið var skráð í Kauphöll árið 1999. Össur gaf út samhliða uppgjörsbirtingu að til standi að hefja arðgreiðslur ef félagið fer ekki í stór fyrirtækjakaup næstu 12 mánuði,“ segir ennfremur í Morgunkorni.



















