Viðskipti
| AFP
| 9.2.2012
| 13:11
Hagnaðurinn tvöfaldaðist
Hagnaður hollenska bankans ING tvöfaldaðist á milli ára og nam árið 2011 5,77 milljörðum evra, 938 milljörðum króna. Bankinn ætlar ekki að greiða arð til hluthafa fyrir síðasta ár vegna þess hve horfur eru slæmar í efnahagsmálum heimsins.
Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 1,18 milljörðum evra sem er átta sinnum meiri hagnaður en á fjórða ársfjórðungi 2010. Aukinn hagnaður skýrist meðal annars af sölu eiga sem eru bókfærðar sem söluhagnður upp á 1,29 milljarða evra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















