Farþegi í mál við Ryanair vegna eldgoss á Íslandi
Ryanair segist ekki bera ábyrgð á kostnaði flugfarþega sinna sem til féll er flugumferðarsvæðinu var lokað árið 2010 vegna eldgosa á Íslandi. Málið er flutt fyrir Evrópudómstólnum í dag og er niðurstöðunnar beðið með nokkurri eftirvæntingu þar sem málið fjallar um réttindi flugfarþega þegar náttúruhamfarir verða.
Öskuskýið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli varð til þess að flugmálayfirvöld í Evrópu lokuðu stórum hluta flugumferðarsvæðisins og fleiri hundruð ferðum var aflýst. Ryanair segir að svæðinu hafi verið lokað vegna óvenjulegra aðstæðna, þ.e. náttúruhamfara, og því eigi félagið ekki að bera kostnað flugfarþeganna vegna röskunar á fluginu.
Málið er tilkomið vegna farþega sem fór í mál við Ryanair fyrir það fjárhagstjón sem hann varð fyrir vegna röskunar flugsamgangna.



















