Sekt fyrir netsmelli
Hæstiréttur hefur dæmt Icelandair til að greiða 80 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína með því að bjóða svonefnda Netsmelli árið 2004 milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar.
Hæstiréttur taldi hins vegar ekki, að Icelandair hefði brotið samkeppnislög með Netsmellum milli Keflavíkurflugvallar og Lundúna.
Samkeppniseftirlitið, áfrýjunarnefnd samkeppnismála og síðan Héraðsdómur Reykjavíkur höfðu öll talið að Icelandair hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með kynningu á svokölluðum Netsmellum árið 2004 á þeirri forsendu, að þessi fargjöld hefðu beinst gegn Iceland Express, sem þá hafði nýtekið til starfa.
Samkeppniseftirlitið gerði Icelandair að greiða 190 milljónir króna í stjórnvaldssekt, áfrýjunarnefndin lækkaði sektina í 130 milljónir en héraðsdómur felldi sektina niður. Nú hefur Hæstiréttur dæmt Icelandari til að greiða 80 milljónir í sekt eins og áður sagði.



















