Borgarbyggð selur hlut í Faxaflóahöfnum
Frá Borgarnesi. www.mats.is
Byggðaráð Borgarbyggðar samþykkti í dag að taka tilboði Reykjavíkurborgar í hluta af eignarhlut í Faxaflóahöfnum. Tilboðið í hlutinn hljóðar upp á 75 milljónir króna.
Í fréttatilkynningu frá Borgarbyggð segir að nýverið samþykkti byggðarráð Borgarbyggðar að bjóða til sölu hluta af eignarhlut sínum í Faxaflóahöfnum, en sveitarfélagið á 4,84% í fyrirtækinu.
Á fundi borgarráðs í morgun samþykkti Reykjavíkurborg að gera tilboð í 0,7044 af eignarhluta Borgarbyggðar. Tilboðið í hlutinn hljóðar upp á 75 milljónir króna.
Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti svo á fundi sínum í dag að taka tilboðinu.
Samkvæmt sameignarsamningi um Faxaflóahafnir hefur fyrirtækið forkaupsrétt á hlutnum og mun tilboðið því lagt fyrir stjórn Faxaflóahafna á fundi hennar á morgun.
Ef höfnin fellur frá forkaupsrétti þá gengur kauprétturinn til eigenda í samræmi við eignarhlut, en auk Borgarbyggðar og Reykjavíkur eru Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppur eigendur Faxaflóahafna. Eftir söluna verður eignarhlutur Borgarbyggðar í Faxaflóahöfnum 4,1356%.
Borgarbyggð mun nýta andvirði sölunnar til að fjármagna lánveitingu að upphæð 75 milljónir króna til Orkuveitu Reykjavíkur.



















