Viðskipti
| AFP
| 9.2.2012
| 12:33
Útlit fyrir minni eftirspurn
OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, telja að eftirspurn eftir hráolíu eigi eftir að vera minni í ár en áður var talið.
Í nýrri skýrslu OPEC kemur fram að ástæðan fyrir minni eftirspurn sé einkum rakin til tveggja þátta; efnahagssamdráttar í Evrópu og Bandaríkjunum og hækkunar á olíuverði.
Er nú gert ráð fyrir að eftirspurnin verði 88,76 milljónir tunna á dag en fyrir mánuði gerðu samtökin ráð fyrir því að eftirspurnin yrði 88,90 milljónir tunna á dag.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað lítillega í dag og er Brent Norðursjávarolía nú á 117,58 Bandaríkjadali tunnan en WTI-hráolía á 99,32 dali tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















