Afkoma í samræmi við væntingar Icelandair
Forstjóri Icelandair Group segist sáttur við fjárhagslega niðurstöðu síðasta árs en 4,5 milljarða króna hagnaður varð af rekstrinum. Í ár bætast tvær nýjar flugvélar í flota fyrirtækisins. „Icelandair verður með umsvifamestu flugáætlun sína frá upphafi í ár,“ segir forstjórinn.
Tap að fjárhæð 200 milljónir var af rekstrinum á síðasta fjórðungi ársins 2011 en á sama tímabili árið áður var 1,4 milljarða króna hagnaður. EBITDA á fjórða ársfjórðungi var neikvæð um 0,1 milljarð króna en var jákvæð um 1,1 milljarð króna á fjórða ársfjórðungi 2010. Hátt eldsneytisverð leiddi til mikilla kostnaðarhækkana í fjórðungnum sem skýrir lakari afkomu á milli ára. Þetta segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group hf. í frétt frá félaginu. Með EBITDA er átt við afkomu fyrirtækja áður en tekið er tillit til vaxtagreiðslna og vaxtatekna, skattgreiðslna og afskrifta.
„Varðandi árið [2011] í heild þá erum við mjög sátt við niðurstöðuna, hagnað að fjárhæð 4,5 milljarð króna, sérstaklega í ljósi neikvæðra áhrifa hækkana á eldsneytisverði, eldgoss í Grímsvötnum og verkfallsaðgerða. Fjárhagsleg staða félagsins er sterk, eiginfjárhlutfallið er 36% og handbært fé og markaðsverðbréf nema 13,1 milljörðum króna í árslok. Ég vil þakka reynslumiklu og metnaðarfullu starfsfólki okkar fyrir þennan árangur.“
Mikill innri vöxtur einkenndi árið 2011 að sögn Björgólfs. „Við gerum ráð fyrir að auka umsvif okkar enn á árinu 2012. Icelandair verður með umsvifamestu flugáætlun sína frá upphafi og bókanir fyrir fyrstu mánuði ársins 2012 lofa góðu. Icelandair Hotels opnar nýtt hótel við Reykjavíkurhöfn á vormánuðum auk þess sem Flugfélag Íslands mun halda áfram að auka framboð flugferða til Grænlands.“
Í frétt Icelandair segir ennfremur að á fyrri hluta ársins bætast tvær nýjar flugvélar í flota Icelandair og fylgir því nokkur innleiðingarkostnaður. Jafnframt er olíuverð hærra en á síðasta ári og gengi evru gagnvart dollar óhagstæðara. Því sjái félagið fram á að afkoman á fyrsta ársfjórðungi 2012 verði nokkru lakari en á síðasta ári.
„Samkvæmt áætlunum félagsins fyrir árið 2012 í heild gerum við ráð fyrir að EBITDA verði 11–12 milljarðar króna, sem er aukning frá fyrra ári þegar EBITDA var 10,4 milljarðar króna,“ segir Björgólfur.



















