Viðskipti
| AFP
| 10.2.2012
| 8:36
| Uppfært
9:06
Lækkun á mörkuðum
Allir helstu hlutabréfamarkaðir hafa lækkað í dag vegna stöðu mála í Grikklandi þar sem fjármálaráðherrar ríkja á evrusvæðinu gera auknar kröfur um niðurskurð í Grikklandi.
Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um að lána Grikkjum aukið fé og hafa grísk stjórnvöld því skamman tíma til að koma fjármálum landsins í lag svo forða megi landinu frá greiðslufalli.
Í Sydney lækkaði hlutabréfavísitalan um 0,88%, Nikkei í Tókýó lækkaði um 0,61% og í Seúl nam lækkun Kospi-vísitölunnar 1,04%.
FTSE-vísitalan í Lundúnum hefur lækkað um 0,55%, CAC í Frankfurt hefur lækkað um 0,86% og CAC í París um 0,97%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















