Viðskipti
| AFP
| 10.2.2012
| 8:47
| Uppfært
9:14
Minni hagnaður hjá Barclays
Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.
Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að bónusar verði lækkaðir um fjórðung fyrir síðasta ár samanborið við árið á undan.
Þrátt fyrir að Barclays hafi ekki þurft á ríkisaðstoð að halda í hruninu hefur bankinn verið undir miklum þrýstingi að draga úr bónusgreiðslum til lykilstjórnenda.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















