Mun snarlækka verð á þjónustu
Í gær tilkynnti Verne Global fyrstu viðskiptavini gagnaversins sem fyrirtækið hefur reist við Ásbrú í Reykjanesbæ. Það eru fyrirtækin CCP og GreenQloud.
Í fréttaskýringu um gagnaverið í Morgunblaðinu í dag segir Hilmar Veigar Pétursson þá hjá íslenska tölvuleikjaframleiðandanum CCP hafa valið Verne Global undir hýsingu á því sem viðkemur framleiðslukerfinu og skrifstofurekstri.
„En við erum áfram með megnið af hýsingunni í London. Þar er leikurinn EvE Online hýstur og þar eru mörg tonn af vélbúnaði, sem er ekki auðvelt að færa til. Þar sitja bara tölvurnar sveittar og vinna allan sólarhringinn. En með tilkomu þessa gagnabúnaðar hjá Verne Global og ef ljósleiðararnir koma til landsins þá myndum við vilja skoða að stækka samninginn verulega.“
Greenqloud er íslenskt sprotafyrirtæki í hugbúnaðargeiranum sem opnaði fyrsta umhverfisvæna tölvuský heims árið 2010.



















