Fimm bankamenn handteknir
Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum.
Bankamennirnir voru handteknir á heimilum sínum síðasta miðvikudag. Skattarannsóknin er sögð tengjast persónulegum fjármálum fimmmenninganna og ekki tengjast störfum þeirra í bankanum beint. Enn hefur ekki verið upplýst hverjir hinir handteknu eru eða hvaða störfum þeir gegna hjá bankanum.
Breska ríkið á 82% í Royal Bank of Scotland í kjölfar björgunaraðgerðar eftir fjármálahrunið árið 2008.
Í síðasta mánuði ákvað bankastjórinn Stephen Hester að þiggja ekki háa bónusgreiðslu fyrir störf sín, eftir að hafa orðið fyrir miklum þrýstingi. Bónusgreiðslan hljóðaði upp á milljón sterlingspunda eða um 222 milljónir íslenskra króna.



















