Viðskipti
| AFP
| 13.2.2012
| 10:30
| Uppfært
14.2.2012
20:16
Dregur úr verðbólgu í Slóvakíu
Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 3,9% í Slóvakíu í janúar sem er talsvert minni verðbólga en í desember er hún var 4,4%.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,4% í janúar frá desember. Er hækkunin einkum rakin til hærra orkuverðs og matvælaverðs, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Slóvakíu.
Á síðasta ári var verðbólgan 3,9% að meðaltali í Slóvakíu sem er mikil aukning frá árinu 2010 er hún var 1%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















