Viðskipti
| AFP
| 13.2.2012
| 6:29
| Uppfært
9:31
Evran hækkar í Asíu
Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Vonast er til þess að þar með hafi landinu verið forðað frá greiðsluþroti.
Evran hækkaði í 1,325 dollara miðað við 1.318 seint á föstudag í New York.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















