Viðskipti
| mbl
| 13.2.2012
| 8:44
| Uppfært
9:25
Hækkun í Evrópu
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar.
Í Lundúnum hefur FTSE-vísitalan hækkað um 0,67%, DAX í Frankfurt hefur hækkað um 0,83% og CAC í París hefur hækkað um 0,84%.
Á gjaldeyrismarkaði hefur gengi evrunnar styrkst gagnvart Bandaríkjadal og er skráð á 1,3255 Bandaríkjadali samanborið við 1,3181 dali á föstudagskvöldið í New York.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















