Viðskipti
| mbl
| 13.2.2012
| 11:01
| Uppfært
14.2.2012
20:15
Hagnaður Aurum eykst um 53%
Hagnaður Aurum Holdings-skartgripakeðjunnar jókst um 53% á síðasta rekstrarári en keðjan er í eigu slitastjórnar Landsbankans.
Aurum rekur alls um 150 skartgripaverslanir í Bretlandi og Írlandi undir nöfnum Mappin & og Webb, Watches of Switzerland og Goldsmiths.
Nam rekstrarhagnaður Aurum Holdings 18,3 milljónum punda, 3,6 milljörðum króna, á síðasta rekstrarári sem lauk 29. janúar sl. Árið á undan var rekstrarhagnaðurinn 12 milljónir punda.
Slitastjórn Landsbankans er með Aurum Holdings í söluferli en á síðasta ári kom fram að keðjan væri til sölu fyrir 200 milljónir punda. Landsbankinn eignaðist Aurum við gjaldþrot Baugs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















