Viðskipti
| AFP
| 13.2.2012
| 7:10
| Uppfært
9:36
Slæm staða Olympus
Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember.
Staða Olympus hefur verið afar slæm að undanförnu eftir að í ljós kom að bókhaldsbrellur höfðu verið stundaðar hjá fyrirtækinu um árabil til þess að fela tap af yfirtökum. Meðal annars greiddi Olympus lítið þekktum fjármálaráðgjafa á Cayman-eyjum 687 milljónir Bandaríkjadala þegar Olympus keypti breska fyrirtækið Gyrus fyrir tvær milljónir dala árið 2008.
Fyrrv. forstjóri Olympus, Bretinn Michael Woodford, var rekinn frá fyrirtækinu í október þegar hann hótaði að segja frá bókhaldsóreiðunni.
Samkvæmt afkomuspá Olympus er gert ráð fyrir að tap ársins í heild nemi 32 milljörðum jena.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















