Viðskipti
| AFP
| 13.2.2012
| 10:42
| Uppfært
14.2.2012
22:39
Þörf á 33.500 nýjum þotum
Flugfélög heimsins þurfa á 33.500 nýjum þotum að halda á næstu tveimur áratugum og væntanlega verður eftirspurnin mest í Asíu.
Samkvæmt upplýsingum frá Boeing er virði 33.500 flugvéla um fjórar billjónir (milljón milljónir milljóna) Bandaríkjadala.
Svo virðist sem eftirspurnin verði mest í Asíu, eða um 35%. Er eftirspurnin mest eftir þotum sem taka 90-200 farþega en sú stærð hefur einkum verið keypt af lággjaldaflugfélögum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















