Viðskipti
| AFP
| 14.2.2012
| 11:16
| Uppfært
16:34
Tilboðum tekið fyrir 1,3 milljarða evra
Ríkissjóður Grikklands tók tilboðum fyrir 1,3 milljarða evra í ríkisbréf til þriggja mánaða og er ávöxtunarkrafan 4,61%. Er það lægri krafa en í síðasta sambærilega útboði.
Alls bárust tilboð fyrir 2,701 milljarð evra í útboðinu sem er það fyrsta sem gríska ríkið fer í eftir að það samþykkti verulegan niðurskurð á ríkisútgjöldum. Niðurskurðurinn er forsenda þess að Grikkir fái 130 milljarða evra björgunarpakka frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















